ráðstöfun eignarhlutar ríkisins í Íslandsbanka hf.
Frú forseti. Mér finnst nýi Pírataflokkurinn ganga nokkuð vasklega til verka [Hlátur í þingsal.] og vera nokkuð kokhraustur í umræðunni. Og þá á ég við Sjálfstæðisflokkinn sem kemur sér ekki einu sinni saman um hver á að vera þingflokksformaður ef fréttir eru réttar. Það sem mér finnst vera rétt að upplýsa í þessari umræðu er að það er auðvitað miklu auðveldara að greiða atkvæði með þessu máli núna heldur en þegar Sjálfstæðisflokkurinn hélt hér á sölunni. Það var auðvitað nætursala og öll þessi verk sem voru í kringum söluna fyrr voru alls ekki til þess að skapa traust heldur algjört vantraust. Við verðum að gæta að því, hv. þingmenn, frú forseti, að þetta skiptir máli. Það skiptir máli að það sé traust og það skiptir verulega miklu máli að þessi sala gangi betur en sú sem fór fram hér fyrr á öldinni. Þess vegna tel ég að þessi sala sé augljóslega í miklu betri höndum (Forseti hringir.) hjá núverandi hæstv. fjármálaráðherra en hjá þeirri ríkisstjórn sem fór frá völdum (Forseti hringir.) og ég er nokkuð viss um að meiri hluti þjóðarinnar sé mér sammála.