156. löggjafarþing — 37. fundur,  8. maí 2025.

ráðstöfun eignarhlutar ríkisins í Íslandsbanka hf.

173. mál
[11:56]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (M) (um atkvæðagreiðslu):

Frú forseti. Við þetta tækifæri er rétt að minna á að þegar við yfirtókum Íslandsbanka á sínum tíma, ásamt gríðarlegum eignum öðrum, þá stóð til að sú yfirtaka yrði liður í því að ekki bara endurreisa efnahagslíf landsins heldur einnig að endurreisa og endurskipuleggja fjármálakerfið. Það var vikið síðar frá þeim áformum og menn geta haft hver sína skoðun á því hvernig til hefur tekist. En það hefði mátt gera betur. Áður hefur verið minnt á þær tillögur sem Miðflokkurinn lagði fram um hvernig þessum málum yrði best hagað úr því sem komið var. Við teljum þó rétt að hleypa málinu áfram í lokaatkvæðagreiðslu en ég teldi eðlilegt að nefndin skoðaði þetta í millitíðinni til að meta hvort menn telji þetta hina bestu leið til að framkvæma þessa hluti. Og loks get ég ekki annað, frú forseti, en nefnt þessi merkilegu tíðindi hér áðan að það hafi verið staðfest að Flokkur fólksins er í þessari ríkisstjórn ekki hvað síst til þess að framkvæma það sem flokkurinn fyrirlítur.