156. löggjafarþing — 37. fundur,  8. maí 2025.

ráðstöfun eignarhlutar ríkisins í Íslandsbanka hf.

173. mál
[11:59]
Horfa

Hildur Sverrisdóttir (S) (um atkvæðagreiðslu):

Frú forseti. Já, mikið hlýtur hv. þingmönnum Flokks fólksins að líða illa þegar það er komið hingað í pontu til að uppnefna og drepa á dreif einhverjum málum um einhver skipulagsmál í Sjálfstæðisflokknum. Hv. þingmanni og öllum þingheimi til upplýsingar þá er mér ljúft og skylt að segja að okkur í Sjálfstæðisflokknum líður ágætlega. Þakka þér fyrir, okkur líður ágætlega í þeim mjög nauðsynlegu störfum sem við þurfum að sinna hér gagnvart hæstv. ríkisstjórn þar sem vinnubrögð eru með þeim hætti að ja, í sögulegu samhengi held ég að það finnist þess engin fordæmi.

Okkur líður líka ágætlega, takk fyrir, varðandi sögu þessa máls sem er hér undir og að hér sé enn verið í pólitískum tilgangi að halda því fram að síðasta sala hafi klúðrast með ævintýralegum hætti. Ég fór hér yfir áðan að allir hlutlægir þættir málsins sem skipta öllu máli; verð, eftirmarkaður, eignarhald, afslátturinn, allt þetta, sem skipti að sjálfsögðu mestu máli, gekk vel. Við ætlum ekki að elta ólar við þetta hér og nú. Við fögnum viðsnúningnum. Við fögnum því (Forseti hringir.) að það sé hægt að halda áfram í þessu mjög mikilvæga máli fyrir samfélagið. Við ætlum ekki að spila sama popúlíska leik og hefur verið gert hér, að leika sér að eldinum (Forseti hringir.) fyrir íslenskt samfélag, eingöngu í pólitískum tilgangi og láta staðreyndir lönd og leið. (Forseti hringir.) Þannig að Sjálfstæðisflokkurinn verður á grænu í þessu máli í þágu samfélagsins. En við munum ekki gleyma því hvernig umræðunni hér í þessum sal var snúið algjörlega á hvolf, (Forseti hringir.) á harðahlaupum frá staðreyndum málsins sem eru heilt yfir þannig að Sjálfstæðisflokkurinn getur verið stoltur af.

(Forseti (ÞSv): Það er ástæða til að benda á það að tíminn um atkvæðagreiðsluna eru heilar tvær mínútur, ekki tvær og hálf. )