156. löggjafarþing — 37. fundur,  8. maí 2025.

ráðstöfun eignarhlutar ríkisins í Íslandsbanka hf.

173. mál
[12:01]
Horfa

Sigmar Guðmundsson (V) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Ég sagði hérna áðan að svona söluferli snúist um traust. Hér eru þingmenn Sjálfstæðisflokksins að sanna það fyrir þjóðinni að þeim er ekki treystandi til að selja banka. Erum við búin að gleyma því hvernig salan gekk síðast? Er langt síðan menn lásu skýrslu Ríkisendurskoðunar um bankasöluna með öllum þeim fjölmörgu athugasemdum sem þar komu fram? Einkavæðing Sjálfstæðisflokksins í bankakerfinu hefur ekki gengið vel, allra síst á síðustu árum. Fyrrverandi formaður flokksins þurfti að hætta. Hann þurfti að segja af sér sem fjármálaráðherra vegna þess að salan gekk ekki vel. Svo koma menn hingað upp og tala um að Sjálfstæðisflokkurinn hafi skilað af sér góðu búi þegar er verið að tala um sölu eigna ríkisins. Nei, það er einmitt ástæðan fyrir því að við treystum ekki síðustu ríkisstjórn til að halda áfram í því ferli. Það er hins vegar ástæða fyrir því að við treystum nýrri ríkisstjórn til að ganga í það verk. Hennar arfleifð er ekki rjúkandi brunarúst eins og arfleifð Sjálfstæðisflokksins þegar kemur að því að selja eigur ríkisins í fjármálakerfinu. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)