156. löggjafarþing — 37. fundur,  8. maí 2025.

ráðstöfun eignarhlutar ríkisins í Íslandsbanka hf.

173. mál
[12:02]
Horfa

Jón Pétur Zimsen (S) (um atkvæðagreiðslu):

Frú forseti. Mig langar að gera grein fyrir atkvæði mínu og mun ég verða á grænu í þessu máli enda mjög mikilvægt að koma þessum fjármunum inn í hagkerfið á þá staði þar sem þeir nýtast mun betur. Hér er stjórnarliðum tíðrætt um traust og auðvitað er traust allt það sem skiptir máli, sérstaklega í fjármálageiranum. Án trausts virkar ekki neitt. En framganga hæstv. ráðherra Ingu Sæland vekur ekki traust þegar hún talar um og líkir bankanum við gæs. Og síðan það hvernig Flokkur fólksins hefur þurft að éta ofan í sig allt það sem flokkurinn sagði í kringum sölu á Íslandsbanka hér áður, vitandi það að það verður fljótlega gæs í matinn hjá Flokki fólksins. Þetta vekur ekki traust að einn af flokkunum sem eru í ríkisstjórn talaði um hina samheldnu ríkisstjórn, að hæstv. ráðherra komi hér í pontu og lýsi því bara yfir að flokkurinn í það heila sé á móti þessari sölu.