156. löggjafarþing — 37. fundur,  8. maí 2025.

ráðstöfun eignarhlutar ríkisins í Íslandsbanka hf.

173. mál
[12:04]
Horfa

Vilhjálmur Árnason (S) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Ég vil minna á það aftur að hér erum við að greiða atkvæði um smábreytingu á ferlinu við sölu á Íslandsbanka, ferlið sem síðasta ríkisstjórn lagði til og það er ánægjulegt að sjá að núverandi hæstv. ríkisstjórn ætlar að treysta, enda gekk síðasta sala mjög vel hjá síðustu ríkisstjórn. Ef þið horfið á fjármálagerningssöluna þar sem fékkst hæsta verð sem þekkist fyrir sölu og gekk mjög vel og lægsti afslátturinn hefur verið veittur og annað slíkt. Salan gekk gríðarlega vel og ánægjulegt að sjá að núverandi ríkisstjórn ætlar að treysta því, enda gekk þeirri ríkisstjórnin það vel í efnahagsmálum að núverandi ríkisstjórn tók við 50 milljarða betri ríkisbúskap heldur en spár gerðu ráð fyrir. Því hefði hæstv. félags- og húsnæðismálaráðherra léttilega geta lagt fram hér fjáraukalög með sinni hæstv. ríkisstjórn ef hún hefði viljað.