ráðstöfun eignarhlutar ríkisins í Íslandsbanka hf.
Frú forseti. Þetta er áhugaverð atkvæðagreiðsla. Nú ætlar formaður Flokks fólksins að að greiða atkvæði þegar hún er búin að finna nýja uppskrift að gæsinni á grillinu sem henni hugnast betur. En vænst af öllu í morgun hefur mér fundist að heyra herhvöt hv. þm. Sigmars Guðmundssonar sem vill skiljanlega gera verðmæti fyrir ríkissjóð úr verðmæti sem hann hafði enga trú á fyrir nokkrum árum síðan að væri raunverulegt. Hann sagði þá: Trúir þú að þú getir komið með 300 milljarða út úr þessu sem þú ert að berjast við einn manna? Nú er það komið á daginn að gott betur hefur verið gert og ég gleðst yfir þessum sinnaskiptum hv. þingmanns og bara gleðst yfir því að hann skuli vilja greiða þessu góða máli hér atkvæði. Auðvitað hefðum við viljað skila bankanum til almennings, eins og fram hefur komið, en þetta er líklega það næstbesta.