156. löggjafarþing — 37. fundur,  8. maí 2025.

ráðstöfun eignarhlutar ríkisins í Íslandsbanka hf.

173. mál
[12:11]
Horfa

félags- og húsnæðismálaráðherra (Inga Sæland) (Flf):

Frú forseti. Það er náttúrlega ánægjulegt, eins og fram hefur komið, að þeir sem verða í fyrsta sæti í A-bókinni, það er íslenskur almenningur og þegar þau hafa ekki ráð á því að kaupa meira í bankanum þá erum við með B-bókina og C-bókin er í rauninni þeir sem reka lestina og þurfa að vera ansi efnamiklir til að eiga möguleika á því að fjárfesta í bankanum okkar. Það hefur verið vilji okkar allra í hingað til að reyna að fá erlenda fjárfesta inn í bankakerfið í sambandi við vonandi aukna og betri samkeppni. En þegar kemur að því að greiða atkvæði um sölu á Íslandsbanka þá hef ég ítrekað sagt og ég mun segja það áfram, hvort sem það ratar á spjöld sögunnar eða verður í prúðuleikhúsi hv. þm. Guðlaugs Þórs Þórðarsonar, að það breytir ekki þeirri staðreynd að um það var samið við myndun síðustu ríkisstjórnar. Það er heldur ekki sama og skrifað að taka upp fjárlög sem hafa verið samþykkt fyrir síðustu áramót og ætla að rústa þeim, eins og hér hefur ítrekað komið fram. Ég veit ekki einu sinni til þess að það séu fordæmi um slíkt enda skýrar reglur um það að fjárlögin okkar (Forseti hringir.) skuli vera orðin að lögum fyrir áramót hverju sinni fyrir komandi ár. Við eigum líka minni hluta núna í fallegu gullgæsinni (Forseti hringir.) sem Íslandsbanki er. Ég er með sannfæringu og stuðningi við mína ríkisstjórn, sem ég tel vera mest virði af því öllu sem við höfum fengið um langan tíma, að greiða atkvæði með þessari sölu. (Forseti hringir.) En samt sem áður, hefði ég verið einráð hér þá hefði ég ekki selt bankann.