156. löggjafarþing — 37. fundur,  8. maí 2025.

ráðstöfun eignarhlutar ríkisins í Íslandsbanka hf.

173. mál
[12:15]
Horfa

Stefán Vagn Stefánsson (F):

Virðulegur forseti. Mér láðist nú að nefna það hér í upphafi að ég styð þetta mál, gerði það síðast og geri það aftur. Ég hef ekki breytt minni skoðun á því eins og sumir. En mig langaði hins vegar bara að benda á það, virðulegur forseti, að þegar er verið að tala um hér að almenningur hafi forgang samkvæmt þessari tilboðsbók A, sem er bara gott og blessað, þá er það nú þannig að almenningur getur keypt í bankanum í dag. Hann er á markaði. Það kom nú fram í umfjöllun um þetta ágæta mál að menn höfðu áhyggjur af því, virðulegur forseti, hvort við fengjum nægilega þátttöku almennings í þessu útboði þar sem honum stæði boða að kaupa hlut í bankanum í dag á markaði.