fyrirspurnir til ráðherra.
Hæstv. forseti. Nú í morgun fékk ég afsvar frá skrifstofu Alþingis um að taka til tvær fyrirspurnir sem ég sendi sem báðar hafa komið fram fyrr, þ.e. sambærileg fyrirspurn og var gerð afturreka í morgun fékk hljómgrunn hér á þinginu fyrir nokkrum árum síðan. Það tók að vísu tvö ár að fá svar við henni og svarið fékkst ekki fyrr en það var farið að veifa framan í viðkomandi ráðherra þá að hann væri að brjóta lög um ráðherraábyrgð. Hin fyrirspurnin varðar fyrirtæki í almannaeigu og af því að forseti beindi því til okkar áðan að lesa þingskapalögin þá lagði ég fram fyrirspurn sem varðar Landsbanka Íslands hf. og mig langar að fá, með leyfi forseta, að vitna í þingskapalögin, 3. mgr. 49. gr., þar sem segir:
„Með opinberu málefni er átt við sérhvert málefni er tengist hlutverki og starfsemi ríkisins og stofnana þess, svo og félaga og annarra lögaðila sem eru að hálfu eða meira í eigu ríkisins og annast stjórnsýslu eða veita almenningi opinbera þjónustu á grundvelli laga, stjórnvaldsfyrirmæla eða samnings.“ (Forseti hringir.)
Landsbanki Íslands er 98,3% í eigu almennings og um starfsemi hans gildir m.a. samningur sem var gerður milli ríkisins og Landsbankans árið 2009. (Forseti hringir.) Þannig að, forseti, nú bið ég um að forseti standi með þeim helga rétti þingmanna að veita aðhald (Forseti hringir.) og veiti þessum fyrirspurnum mínum brautargengi.