156. löggjafarþing — 38. fundur,  8. maí 2025.

ráðstöfun eignarhlutar ríkisins í Íslandsbanka hf.

173. mál
[12:23]
Horfa

Sigurður Ingi Jóhannsson (F):

Virðulegi forseti. Það er kannski að bera í bakkafullan lækinn, en ég styð málið. Það gera allir í salnum, allir sex þingflokkarnir, hver einasti sem hér er mættur, ólíkt því þegar menn greiddu atkvæði hér fyrir tæpu einu ári síðan um nákvæmlega fyrirkomulagið á sölunni. Þá greiddu atkvæði gegn þessari sölu og þessu fyrirkomulagi allir þingmenn Samfylkingarinnar, allir þingmenn Flokks fólksins og Viðreisn sat hjá. (ÞSv: Er þetta ekki þín atkvæðaskýring?) Ég ætla bara að segja: Batnandi fólki er best að lifa. Við í Framsókn styðjum sölu á Íslandsbanka þó svo að við styðjum ekki sölu á öllum ríkisfyrirtækjum og setjum fyrirvara við margt af því. En þessi sala er vel undirbyggð sem allir þingmenn allra flokka sem sitja á þingi eru sammála um í dag en voru aldeilis ekki þeirrar skoðunar fyrir innan við einu ári síðan. Það er umhugsunarvert.