156. löggjafarþing — 38. fundur,  8. maí 2025.

ráðstöfun eignarhlutar ríkisins í Íslandsbanka hf.

173. mál
[12:24]
Horfa

Pawel Bartoszek (V):

Virðulegur forseti. Þetta er búin að vera fróðleg umræða hér í dag. Það verður gaman að sjá þingheim þegar hann verður loksins ósammála, hvernig umræðan verður þá. [Hlátur í þingsal.] En ég vil þó nefna það, af því að auðvitað er hægt að fara í svona hluti, velta fyrir sér hverjir voru hvað og hverjir sögðu hvað. Það má líka nefna það að hv. þm. Sigurður Ingi Jóhannsson lýsti því yfir í umræðu þegar síðasta málið var rætt að þetta væri í rauninni hans frumvarp sem hann hefði skrifað sjálfur, stoltur af því. En svo má nefna það að þegar málið var tekið út úr hv. efnahags- og viðskiptanefnd voru þar einungis stjórnarþingmenn sem þar komu að, þannig að ekki treysti sér neinn frá Framsóknarflokknum sér til að skrifa undir það álit sem formaður lýsti stoltur yfir að hann hefði skrifað sjálfur. Þannig að í svona leitir má fara víða. En ég er samt ánægður með að það lítur út fyrir að þetta frumvarp verði samþykkt með öllum greiddum atkvæðum. Viðreisn styður þetta mál, ég styð þetta mál líka heils hugar.