veiðigjald.
Frú forseti. Ég er afskaplega gramur yfir því hversu títt það er orðið að ríkisstjórnir samþykki, keyri í gegn mál þar sem menn geta gefið sér að málið muni ekki ganga upp og jafnvel hafa neikvæð áhrif. En ákvarðanirnar eru samt teknar vegna þess að þær byggjast bara á umbúðum og yfirlýstum markmiðum en ekki innihaldinu og raunverulegum áhrifum málanna, og þannig er það með málið sem við ræðum hér. Látum vera með markmiðið, það að auka tekjur ríkisins af sjávarútvegi. Það er án efa hægt. En það blasir við að aðferðin er til þess fallin að stuðla að samþjöppun í greininni, að veikja samkeppnisstöðu minni og meðalstórra fyrirtækja og stefna þannig byggðarlögum í hættu. Heilu byggðarlögunum er með þessu stefnt í hættu en um leið er skapaður aukinn og reyndar mjög sterkur hvati til að fiskurinn sé unninn erlendis í ríkisstyrktum verksmiðjum. Þetta er norska leiðin sem fulltrúar ríkisstjórnarinnar státuðu sig af framan af þar til einhverjar auglýsingar fóru að fara í taugarnar á þeim. En norska leiðin er þessi, að miða kostnaðinn við veiðarnar sjálfar og svo vinna það upp með ódýrri vinnslu í útlöndum.
Stjórnarliðar vilja sem minnst ræða innihald þessa máls eða afleiðingarnar og umbúðamennskan nær svo langt að þeir geta ekki einu sinni talað út frá því sem þó kemur fram í frumvarpinu sjálfu. Það nær svo langt að þeir tala jafnvel í andstöðu við það sem kemur fram í frumvarpinu sjálfu. Til að mynda er því haldið fram hér að ekki sé um skatt að ræða og þar af leiðandi ekki skattahækkun. En það stendur skýrt í umbúðunum sjálfum sem ráðherra þessarar ríkisstjórnar lagði fram að það sé ágreiningslaust að um skatt sé að ræða og þar af leiðandi skattahækkun. Margir stjórnarliðar, líklega flestir miðað við umræðu um þetta mál, virðast einfaldlega ekki vera með það á hreinu hvað er í frumvarpinu. Þeir tala alla vega ekki um innihaldið. Þeir tala ekki um innihaldið vegna þess að þeir eru popúlistar. Þeir nota stikkorð síendurtekið; réttlæti, sanngirni, eðlilegt endurgjald o.s.frv., og aðstoðarmenn ráðherra og þingflokka hamast við það að deila þessum stikkorðum á samfélagsmiðlum, ekki að ræða innihaldið eða svara fyrir það. Ríkisstjórninni hefur ekki einu sinni tekist að gera greiningu á áhrifum málsins, heildargreiningu, og allra síst fyrir sveitarfélögin sem eins og ég nefndi áðan eiga þó mörg á hættu að lenda í verulegum kröggum vegna þessa máls, jafnvel að því marki að byggð geti verið ógnað. En stjórnarliðar telja sig ekki þurfa að ræða heildaráhrifin. Hvers vegna? Vegna þess að þetta eru popúlistar.
Málinu var hent hérna inn í þing ókláruðu í raun eftir að ríkisstjórnin lenti, að eigin mati og annarra, í vandræðum vegna óskylds máls og taldi rétt að dreifa athyglinni. Þá er athyglinni dreift með því að henda inn máli sem getur haft veruleg áhrif á velsæld í þessu landi og sérstaklega byggðarlög sem reiða sig á sjávarútveg. Svo útskýra hv. þingmenn stjórnarliðsins hver á eftir öðrum og ráðherrarnir líka, bæði hér á Alþingi og í viðtölum, að þeir séu að þessu vegna þess að það sé vinsælt, vísa í könnun þar sem var spurt hvort menn teldu að sjávarútvegurinn gæti borgað meira. Auðvitað svöruðu því flestir játandi. En þetta varð réttlæting, meginréttlæting jafnvel þessarar ríkisstjórnar fyrir því að leggja málið fram, að það væri vinsælt. Hvað segir þetta okkur? Þetta eru popúlistar. Svo neita þau eða forðast í öllu falli að ræða samanburð á tekjunum af hækkuðum veiðigjöldum, veiðiskatti, og tekjunum í heild, skattspori. Jafnvel þótt við séum bara að velta fyrir okkur tekjum ríkisins, ekki öllum afleiddu áhrifunum, þá engu að síður hafa þau ekki getað fært rök fyrir því að skatttekjur muni aukast með þessu, af því að þau treysta sér ekki til að meta heildaráhrifin af þessu frumvarpi. Við höfum svo sem séð það í öðrum löndum, nýlegt dæmi frá Noregi, að skattahækkanir, vanhugsaðar skattahækkanir þar sem menn höfðu reiknað sér gríðarlega auknar tekjur, hafa jafnvel, eins og í norska dæminu, leitt til verulegs samdráttar í tekjum af þeim skattstofni.
Í máli sem varðar þjóðarhag, byggðir landsins og velferð landsmanna allra er mikilvægt að það sé rætt út frá innihaldinu og að menn sem ræða það, sérstaklega þeir sem kynna það til sögunnar, hafi einhverja hugmynd um hvað málið snýst um. Nú ætla ég að velta aðeins fyrir mér innihaldinu en það er varla hægt öðruvísi en að ná sameiginlegum skilningi á því hvað hugtök þýða, því að það hefur verið mjög á reiki í þessari umræðu.
Veiðigjöld — ja, maður hefði nú haldið að flestir vissu hvað það þýddi en stjórnarliðar hafa ólíka skýringu á því. Þetta er hugtak sem var reyndar eiginlega ekkert notað í umræðu á þingi fyrr en tiltölulega nýlega vegna þess að það hvarflaði ekki að neinum að það væri hægt að taka gjald fyrir veiðarnar, því að lengst af var sjávarútvegur á Íslandi ríkisstyrktur. En til að skýra þetta þá er, eins og reyndar kemur fram í frumvarpinu sjálfu, þótt það hafi farið fram hjá mörgum, veiðigjald sérstakur skattur á sjávarútveginn.
Orðið þjóðareign hefur mikið verið notað í þessari umræðu. Þetta orð var títt notað í gamla Sovétinu en þá var átt við ríkiseign. Þjóðareign þótti hljómfegurra en merkingin var ríkiseign. Í átökum krata og sósíalista á fyrstu áratugum 20. aldar má finna mjög margar tilvísanir, t.d. í Alþýðublaðinu, kratamálgagninu, í það að kratar séu ólíkir sósíalistum að því leyti að þeir vilji ekki að framleiðslutækin og hitt og þetta verði þjóðareign. Þannig reyndu þeir að skilja sig frá sósíalistum. Í sjávarútvegsmálum var fyrst farið að nota þetta hugtak, eftir því sem næst verður komist, hér á þinginu af Steingrími J. Sigfússyni sem virtist nota orðið í sömu merkingu og þeir í Sovétinu, að hann ætti við ríkiseign. Þjóðareign er ágætisorð að mínu mati til að lýsa sambandi okkar við fiskana í sjónum en það er betra að vita hvað það þýðir. Er átt við sameiginlega eign þjóðarinnar eins og þjóðfánann, Íslendingasögurnar, tungumálið, fiskinn, landhelgina? Við háðum þrjú þorskastríð til að verja þá þjóðareign liðinna kynslóða og framtíðarkynslóða sem felst í auðlindinni. En þegar menn ætla að byggja frumvarp á hugtaki er betra að vita hvað það þýðir.
Þetta kom til umræðu í tengslum við deilur um nýja stjórnarskrá og síendurteknar tilraunir ríkisstjórnarinnar til að gera breytingar á stjórnarskrá. 2020 sendi Feneyjanefndin — Feneyjanefnd Evrópuráðsins sem hefur það að hlutverki að reyna að leiðbeina þjóðum um hvernig þær eigi að vera lýðræðislegar og viðhafa góða stjórnarhætti, nokkuð sem er örugglega mjög í náðinni hjá stjórnarflokkunum, Viðreisn og Samfylkingu — athugasemdir við drög að stjórnarskrárbreytingum og gerði sérstaka athugasemd við hugtakið þjóðareign. Forsætisráðuneytið tilkynnti um þetta, en þar segir, með leyfi forseta:
„Varðandi náttúruauðlindir þurfi að skýra frekar hvað átt sé við með þjóðareign og tengslum við hefðbundinn eignarrétt. Sjá þurfi til þess að hægt sé að bera undir dómstóla ágreining um gjaldtöku og nýtingu í ábataskyni.“
Það ætti því að vera öllum í hag að menn viti um hvað er verið að tala og að við höfum sameiginlegan skilning á því. Ef hugtakið á ekki að þýða að ríkiseign, þjóðareign sé eitthvað afstaðið sem hafi átt við um liðnar kynslóðir og eigi að eiga við um framtíðarkynslóðir, þá er þetta ekki rétta leiðin. Ef við erum að hugsa raunverulega um þjóðareign þá hljótum við að vilja líta á heildaráhrifin fyrir þjóðina, fyrir samfélagið allt, ekki bara áhrif gjaldtökunnar og hversu mikið ríkið telur sig fá í kassann út á þessa einu gjaldtöku heldur heildaráhrifin á þjóðarbúið, byggðirnar, atvinnusköpun, nýsköpun, langtímaáhrifin af lagabreytingunni. En ef menn eru að túlka þetta eins og virðist vera af ræðum hv. stjórnarliða, túlka þetta þannig að þjóðareign þýði í rauninni ríkiseign, þá eru þau samt ekki að leggja fram gott frumvarp því að jafnvel þótt einungis væri litið til tekna ríkissjóðs þá bendir margt til þess að þetta muni draga úr heildartekjum ríkissjóðs, svo ekki sé minnst á öll hin áhrifin á byggðirnar, nýsköpunina, flutning starfa úr landi o.s.frv. Hvort sem menn nota þann skilning sem ég legg í orðið eða gamla skilninginn frá Sovétinu, að þetta sé ríkiseign, er engu að síður ekki verið að taka skynsamlegar ákvarðanir. En ávinningur þjóðarinnar af sjávarútvegi er ekki aðalatriðið í þessu máli hjá þeim sem styðja þetta mál. Það hefur verið útskýrt fyrir okkur af hv. þingmönnum stjórnarliðsins að það sé líka siðferðisleg spurning að leggja á þetta gjald og skipti kannski ekki öllu um tekjur ríkissjóðs. Aðalatriðið í þessari umræðu af hálfu stjórnarliðsins hefur verið að kasta fram frösum án innihalds, enda eru þetta popúlistar.
Svo er það hugtakið auðlindarenta sem mikið er notað í umræðunni. Hvenær ætli það hafi fyrst komið til sögunnar? Það er fyrst nefnt hér á Alþingi árið 1992 af Jóni Sigurðssyni, þingmanni Alþýðuflokksins og iðnaðarráðherra, og gert í tengslum við umræðu um lagningu sæstrengs. Jón útskýrði að ef af því yrði þá þyrfti að leggja á sérstaka auðlindarentu vegna þess að þá nýttist orkan ekki innan lands. Ef hún nýttist innan lands væri rentan, tekjurnar, að verða til á fjölbreyttan hátt; með atvinnusköpun, með skattlagningu, með verðmætasköpun í landinu. En ef menn ætluðu að flytja orkuna úr landi þannig að hún yrði nýtt annars staðar þá þyrfti að leggja á sérstaka auðlindarentu. Þannig varð hugtakið til. En renta, þetta orð, er orðið að miklu töfrafyrirbæri í meðförum þessarar ríkisstjórnar. Hæstv. forsætisráðherra sagði í svari við fyrirspurn minni hér að þetta væri bara renta og hún hefði fyrir vikið engin áhrif á rekstur fyrirtækjanna. Í alvöru, frú forseti, hæstv. forsætisráðherra sagði þetta, að af því þetta væri renta hefði það engin áhrif á rekstur fyrirtækjanna.
Í þessari umræðu hefur brotthvarfið frá raunveruleikanum haldið áfram og nokkrir hv. þingmenn stjórnarliðsins hafa nú fikrað sig áfram með það að halda því fram að íslenskur sjávarútvegur sé í rauninni ríkisstyrktur. Hvernig fara þeir að því að rökstyðja það? Jú, þeir tína til eitt og annað, að það þurfi að halda úti veðurstofu til að fylgjast með veðrinu á miðunum, það þurfi hafnir og vegi og eitt og annað sem sjávarútvegurinn nýti og þegar kostnaður við allt þetta komi saman þá sé það í rauninni ríkisstyrkur til sjávarútvegsins. Ef sama viðmið væri notað um aðrar atvinnugreinar þá efast ég um að það væri hægt að finna eina einustu atvinnugrein sem væri ekki ríkisstyrkt út frá því sama.
Frú forseti. Ég er varla hálfnaður með ræðu mína og mun því þurfa að halda áfram í nýrri ræðu en meginniðurstaðan, ég skal segja frá því fyrir fram, er sú að þessi ríkisstjórn sé ekki að leita að lausn í sjávarútvegsmálum, hún sé ekki einu sinni að hugsa um að auka tekjur ríkissjóðs, hún sé fyrst og fremst að hugsa um það að gera það sem hún telur að sé vinsælt vegna þess að þetta eru popúlistar.