156. löggjafarþing — 38. fundur,  8. maí 2025.

veiðigjald.

351. mál
[12:41]
Horfa

Jón Gunnarsson (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég vil þakka hv. þm. Sigmundi Davíð fyrir áhugaverðar pælingar í þessu stóra samhengi og spyrja hann aðeins nánar út í þetta réttláta afgjald, þessa þjóðareign, sem er svo mikið notað hér í umræðunni og þykir fallegt orð. Auðvitað er ekkert annað verið að gera með þessu frumvarpi en að afla meiri tekna fyrir ríkissjóð og það er þetta skilgreiningaratriði: Hvar liggur þá ríkissjóður versus einhver þjóðareign? En hvernig væri þá kannski hin eðlilega nálgun á það að arður af þessum rekstri, þessari verðmætasköpun sem verður af náttúruauðlindum landsins rynni beint til þjóðarinnar? Það eru svæði eins og t.d. í Alaska þar sem íbúunum er greiddur í raun bara beint arður af þessu. Ragnar Árnason, auðlindahagfræðingur og prófessor, einn af þeim virtari í heimi sem þekkir þetta vel, hefur til að mynda velt upp þeirri hugmynd hvort í fyrirtækjum í sjávarútvegi, þ.e. í útgerð, ætti að vera einhvers konar skyldueign þjóðarinnar, að þjóðin ætti að eiga hlutabréf, lítið hlutabréf í öllum þessum fyrirtækjum sem síðan nytu þá þeirra arðgreiðslna sem kæmu. Þannig myndi myndast sjóður sem væri hin raunverulega þjóðareign og þegar tímabært væri að fara að greiða arð út úr þeim sjóði þá fengi bara hver íbúi yfir ákveðnum aldri, hvort það er skattborgari, sinn tékka inn um lúguna á hverju ári og væri þannig að fá raunverulegan arð af auðlindum, þessum náttúruauðlindum. Og hver væri þá hagur þjóðarinnar? Jú, hann væri að verðmæti fyrirtækjanna væru sem mest, að þau væru að skila sem mestum arði, mestum hagnaði og að auðlindin væri nýtt með sem skynsamlegustum hætti.