156. löggjafarþing — 38. fundur,  8. maí 2025.

veiðigjald.

351. mál
[12:44]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég hef velt upp svipuðum hugmyndum. Ég held að það væri mjög æskilegt að tengja hag almennings í landinu með beinni hætti við auðlindanýtingu þar sem þess er kostur. Þetta er hins vegar ekki auðvelt mál að útfæra. Til að mynda er spurning hvernig tekið væri á því þegar nýir einstaklingar fæðast eða bætast við samfélagið og aðrir falla frá. Væntanlega þyrfti það þá að vera þannig að þessi hlutur erfðist ekki heldur dreifðist á fleiri hendur þegar fleira fólk bætist við. Það er eitt og annað svona praktískt sem þarf að huga að í þessu samhengi. En heildarhugmyndin finnst mér áhugaverð og góð. Við, fyrir kosningar 2021, lögðum til að mynda fram hugmyndir um að búa til hvata fyrir almenning til að hafa áhyggjur af hallarekstri ríkissjóðs því að ef þetta eru ríkispeningar þá virðist það oft vera svo fjarlægt fólki og sumir, einkum á vinstri kantinum, virðast telja að ríkispeningar bara verði til af sjálfu sér með peningaprentun eða spretti upp úr jörðinni. En þarna var hugmynd um það að ef tækist að reka ríkið með afgangi þá fengju þegnarnir, almenningur, endurgreitt til jafns, fengju hlutdeild í rekstri ríkisins. Auðvitað háð því að ríkið skilaði afgangi. Þá væri kominn hvati fyrir landsmenn að halda stjórnmálamönnunum við efnið og horfa ekki aðgerðalausir upp á það að ríkið sé rekið með umtalsverðum halla ár eftir ár eftir ár.