veiðigjald.
Virðulegur forseti. Það er auðvitað útfærsluatriði hvernig þetta yrði nálgast og þar yrði að vanda til verka. Aftur á móti má þetta alls ekki vera þannig og skilja orð mín þannig að ég sé að mælast til þess að ríkið eða þjóðin verði einhver meirihlutarekstraraðili á þessum vettvangi. Við höfum sorgarsögur af því frá bæjarútgerðum þar sem einmitt skattborgararnir voru að greiða með þessu á hverju ári. En ef maður hugsar þetta svona, er þá ekki það skref sem verið er að stíga núna stórhættulegt og algerlega öfug nálgun miðað við það sem við erum að tala um, að arðurinn renni af hagkvæmum rekstri til þjóðarinnar, eins og hann gerir í gegnum skattgreiðslur í dag að hluta, eru svona beinni í því? Vegna þess að hversu mikið bara þá við að leggja fram þetta frumvarp hefur virði þessara fyrirtækja dregist saman? Svo nemur tugum milljarða að markaðsvirði. Það er alveg ljóst að þetta mun hafa gríðarleg áhrif, fjölþætt áhrif sem eru mjög óviss vegna þess að greiningarvinnan (Forseti hringir.) liggur ekki fyrir. En þarna er verið að vinna í raun gegn þeim markmiðum sem lagt er upp með, að auka fjármagn af auðlindum þjóðarinnar, (Forseti hringir.) Væri ekki viðbúið ef þjóðin sæti við þetta borð með okkur að þá myndi hún leggjast mjög gegn svona frumvarpi?