156. löggjafarþing — 38. fundur,  8. maí 2025.

veiðigjald.

351. mál
[12:48]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (M) (andsvar):

Herra forseti. Jú, ég held að ef fólk skynjaði áhrifin með beinni hætti og fyrr þá hefðu menn miklu meiri efasemdir um þetta en raun ber vitni. En það er alveg rétt sem hv. þingmaður segir að það er einmitt einn af stóru göllunum við þetta frumvarp að það felur afleiðingarnar. Það byggist á yfirborðsmennsku, frösum, en afleiðingarnar eru faldar og birtast á löngum tíma. Áhrifin á byggðarlögin, þegar það verða fleiri brothættar byggðir og það þarf að fara að styrkja þau sérstaklega, áhrif á lífeyrissjóði sem tapa peningum á þessu og geta þá greitt minna út þegar þar að kemur, áhrifin líka á skatttekjur ríkisins. Allt kemur þetta á löngum tíma svoleiðis að fólk finnur ekki beinu tenginguna við afleiðingar þeirra ákvarðana sem stjórnvöld taka. Ég er mjög opinn fyrir öllum hugmyndum um beinni tengingar þar á milli.