veiðigjald.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni fyrir hans ræðu, innihaldsgóðu ræðu og margir góðir punktar sem koma þar fram, eins og t.d. að þetta frumvarp sé popúlismi í þeim skilningi að það liggi ekki fyrir greiningar, það liggi ekki fyrir áhrif á byggðarlögin og annað. Það er bara talað um að þetta sé eðlileg auðlindarenta og hún muni ekki hafa áhrif á rekstur félaganna, sjávarútvegsfélaganna. Það er í rauninni alveg óskiljanlegt í ljósi þess að við erum að heyra síendurtekið að þeir sem eru að leigja húsnæði kvarta sáran yfir hækkandi leigu og að það skerði þeirra lífsgæði og fólk hafi ekki efni á að framfleyta sér út af hækkandi leigu. Hvernig í ósköpunum er þá hægt að fá það út, virðulegur forseti, að hækkandi leiga, auðlindarenta, auðlindaskattur, hafi ekki áhrif á rekstur sveitarfélaganna eða áhrif á sjávarútvegsfélögin og þar af leiðandi áhrif á sveitarfélögin?
Í framhaldi af þessu hefur verið fleygt fram ágætiskenningu. Hv. þm. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson kemur inn á popúlismann og að þessi ríkisstjórn í rauninni sveiflist eftir skoðanakönnunum og sendi út spurningavagna til þess að átta sig á því hvað sé vinsælt og fallið til vinsælda og af því að hv. þingmaður er eldri en tvævetra í stjórnmálum langar mig að spyrja hann. Nú er komin fram sú kenning að þessu máli sé fleygt fram í ljósi þess að það kunni að verða vinsælt til þess að yfirgnæfa og hylma yfir og taka yfir umræðuna um þann flumbrugang og þá ósamstöðu sem er núna innan ríkisstjórnarinnar. Mig langar að spyrja hv. þingmann hvað honum finnst um þessa kenningu.