156. löggjafarþing — 38. fundur,  8. maí 2025.

veiðigjald.

351. mál
[12:51]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (M) (andsvar):

Frú forseti. Mér finnst það bara blasa við í ljósi þess hvenær málið kom fram, það kom fram óklárað, enginn frestur gefinn til að koma að ábendingum, og í ljósi þess hvernig málið var kynnt. Maður getur alveg séð fyrir sér neyðarfundinn hjá ríkisstjórninni, ráðherrum og aðstoðarmönnum, í þeim vandræðum sem þeir voru lentir í: Hvað getum við gert? Hvað getum við gert? Heyrðu, það er örugglega vinsælt ef við hjólum í sjávarútveginn. Og það var bara samþykkt og drifið í því með óklárað frumvarp.

Ég ætla að gera aðeins athugasemdir við eða bæta við það sem hv. þingmaður sagði um skort á skilningi á áhrifum, t.d. leigu, leiguverð hækkaði, skort á skilningi á því að hækka leiguverð eða rentu eða hvað þetta fólk vill kalla það. Við skulum hætta að nota þessi hugtök þeirra og kalla þetta það sem það er, skatta á sjávarútveginn. Vandi vinstri manna, og reyndar fleiri stundum, er sá að þeir eiga mjög erfitt með að skilja heildarsamhengi, heildaráhrif ákvarðana. Þeir reiða sig mjög mikið á frasa, réttlæti og allt þetta. Hér hélt til að mynda hv. þm. Dagur B. Eggertsson, fyrrverandi borgarstjóri, ræðu þessu máli til stuðnings á sinn sérstaka hátt en í tíð hans sem borgarstjóra hafði verið rekin stefna sem menn gátu gefið sér, hún var til þess hönnuð að hækka leiguverð og reyndar kom eitt og annað frá ríkisstjórninni sem hækkaði leiguverðið líka. Nú er búið að byggja rándýr hús á þéttingarreitum, án bílastæða og húsin seljast ekki. Borgarstjórinn fyrrverandi virðist bara undrandi á þessu, að fólk vilji ekki kaupa rándýra íbúð án bílastæðis. Það er af því menn hugsuðu ekki aðgerðirnar til enda. Þetta er í svo mörgum málum, því miður, frú forseti.