156. löggjafarþing — 38. fundur,  8. maí 2025.

veiðigjald.

351. mál
[12:55]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég ræddi aðeins um samþjöppunina hérna í ræðu minni áðan og mun halda áfram með þá umræðu í næstu ræðu en vildi fyrir vikið fá að nota tækifærið til að bregðast við athugasemdum hv. þingmanns um lækkun til að mynda á eignum lífeyrissjóða vegna þessara aðgerða. Vandinn er sá að þessir vinstri menn í þessari ríkisstjórn, popúlistarnir, líta líklega bara svo á að ef það þurfi að færa fórnir, ef allur almenningur, ef lífeyrisþegar þurfi að færa fórnir til þess að einhverjir aðrir hagnist ekki um of þá verði fólk bara gera það. Samfélagið þurfi allt að færa fórnir, tapa peningum, til þess að einhverjir hagnist ekki of mikið. Þetta var nú grundvöllur heils stjórnkerfis sem var við lýði í austurhluta Evrópu um áratugaskeið en afleiðingin varð auðvitað sú að allir urðu fátækari. Allir urðu fátækari vegna þess að meginmarkmiðið var að allir þyrftu að bera byrðarnar saman, jafnvel þótt þær byrðar væru til þess ætlaðar að draga úr verðmætasköpun.