veiðigjald.
Frú forseti. Ég vil byrja á því að þakka hv. þm. Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni fyrir hans ræðu hér, áhugaverða á mjög margan hátt. Ég er að velta fyrir mér því sem ég saknaði svolítið að heyra frá hv. þingmanni, sem var afstaða hans til málsins hvað það varðar að nú erum við auðvitað að ræða hér frumvarp þar sem er verið að gera breytingar og leiðréttingu á veiðigjöldum, reiknistofni aflaverðmæta. Ég hefði viljað heyra aðeins frá hv. þingmanni hans afstöðu til þess að leiðrétta þennan reiknistofn og sanngirnina í því að reikna gjaldið af réttum stofni. Þannig að spurningin er þessi: Hvað finnst hv. þingmanni um að rukka gjaldið af raunverulegum aflaverðmætum?