156. löggjafarþing — 38. fundur,  8. maí 2025.

veiðigjald.

351. mál
[12:58]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (M) (andsvar):

Frú forseti. Leiðrétting, eitt þeirra hugtaka sem ég náði ekki að fara yfir í ræðu minni hér áðan, eitt þeirra hugtaka sem hefur verið misfarið með í þessari umræðu, svona á „orwellskan“ hátt. Þetta er ekki leiðrétting. Þetta er beinlínis skekking á mati á verðinu, þegar farið er í það að bera íslenskan sjávarútveg saman við þann norska og ætla að nota norsk verð til að stýra þessu á Íslandi. Það hefði átt að vera augljóst, frú forseti, að staða sjávarútvegs, og raunar jafnvel eðli hans að nokkru leyti, er mjög ólíkt á Íslandi og í Noregi. Noregur með sinn ríkisstyrkta sjávarútveg og Ísland sem sker sig úr eiginlega á alþjóðavísu fyrir að vera með vel rekinn og hagkvæman sjávarútveg sem er þá ekki byrði á skattgreiðendum heldur getur veitt þjóðinni umtalsverðan arð. Og hverjar verða afleiðingarnar af því þegar menn leggja fram og hugsanlega samþykkja frumvarp út frá því að í því eigi að felast leiðrétting? Þegar raunveruleikinn kemur í ljós að leiðréttingin var til þess fallin að skekkja myndina og í þessu tilviki ýta útgerðarfélögum í að gera það sama og norsku félögin, sem eru með þessa viðmiðun sem á nú að flytja inn til Íslands, og flytja vinnsluna úr landi. Ástæðan fyrir því að norsku fyrirtækin vinna fiskinn ekki eins mikið í Noregi eins og þau íslensku gera er einmitt verðlagningin, ekki hvað síst þar í landi sem kallar til að mynda á það að hagrætt sé með því að flytja fiskinn í ríkisstyrktar verksmiðjur í Póllandi.