156. löggjafarþing — 38. fundur,  8. maí 2025.

veiðigjald.

351. mál
[13:00]
Horfa

Kristján Þórður Snæbjarnarson (Sf) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Ég velti aðeins fyrir mér líka varðandi þetta að nú er erum við að ræða þjóðareignina og nýtingu þjóðareignar, eins og hv. þingmaður kom inn á í sinni ræðu. Rétt áðan og í gær ræddum við útdeilingu verðmæta til þjóðarinnar en stefna flokks hans var að deila út verðmætum þjóðarinnar sem fólust í eignum Íslandsbanka. Nú velti ég fyrir mér afstöðu þingmannsins til þess: Væri ekki réttara að útdeila verðmætum þjóðarinnar, og þá kvótanum, til þjóðarinnar, samanber útfærsluna á Íslandsbanka? Eða er hv. þingmaður ekki á því að þjóðin eigi að njóta þeirra auðlinda sem þjóðin á og í formi þessara veiðigjalda sem nú þegar er verið að rukka og þá með þeirri breytingu og leiðréttingu sem verið er að leggja til?