156. löggjafarþing — 38. fundur,  8. maí 2025.

veiðigjald.

351. mál
[13:09]
Horfa

Vilhjálmur Árnason (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna. Hér í fyrri ræðu hv. þingmanns fjallaði hann mikið um umsagnir sveitarfélaga. Sveitarfélögin eru viss fagaðili og hagaðili í þessu máli og þekkja sitt umhverfi vel og því hafa þær umsagnir verið gríðarlega mikilvægar. Þær voru það mikilvægar að þær höfðu áhrif. Það má alveg hrósa hæstv. ríkisstjórn fyrir það að hún tók mið af þessum umsögnum. En eins og hv. þingmaður fór svo yfir í þessari ræðu eru það einmitt sveitarfélögin sem hafa samt áhyggjur af breyttu frumvarpi. Það er gríðarlega mikilvægt, að mínu viti, að það sé hlustað á þær áhyggjuraddir og því vekur það mikinn ugg hjá mér hvernig það kemur hér aftur og aftur, núna í tvígang, frumvarp sem virðist ekki vera byggt á réttum gögnum. Það er ekki byggt á réttum gögnum, það eru ekki réttir útreikningar og það er ekki rétt áhrifamat.

Þess vegna vil ég spyrja hv. þingmann út í það hverjum hann treystir betur til að koma með réttu tölurnar og réttu staðreyndirnar: Þeim sem hafa stundað rekstur í sjávarútvegi í áratugi, þeim samfélögum og þeim sem bera ábyrgð á sínu samfélagi og þekkja þau, eða ríkisstjórn sem kemur hér fram með frumvarp sem er byggt á slagorðum og popúlisma og því að það eigi að reyna að hefna sín. Hvorum umsjónaraðilanum treystir hann betur?