156. löggjafarþing — 38. fundur,  8. maí 2025.

veiðigjald.

351. mál
[13:15]
Horfa

Stefán Vagn Stefánsson (F) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir síðara andsvarið og þetta er alveg rétt. Þess vegna fannst mér mikilvægt að fara yfir umsögn Vestfjarðastofu, vegna þess að hún kemur svolítið á eftir þessari umræðu sem við áttum hér í þingsal á mánudag og þriðjudag þar sem menn höfðu áhyggjur af því að við værum að gagnrýna rangt frumvarp og sveitarfélögin væru að gagnrýna rangt frumvarp. Þarna í raun og veru kemur það mjög skýrt í ljós.

Það sem ég gagnrýndi þá, og mér finnst bara fínt að benda á aftur, er þessi ofboðslega þrönga sýn ráðuneytisins á það hvað þurfi leggja mat á; sem sagt áhrif á tekjustofna sveitarfélaganna. Það er ekki hægt að skilja frumvarpið með öðrum hætti en þannig að af því að við erum ekki í raun og veru að fara beint inn í tekjustofna sveitarfélagsins þá þurfi ekki að fara í þetta fjárhagslega mat. Þrátt fyrir að öllum sé það ljóst að ef áhyggjur sveitarfélaganna eru réttar þá mun þetta hafa veruleg áhrif á tekjur sveitarfélaga á landsbyggðinni og á höfuðborgarsvæðinu. Við skulum ekki gleyma útgerðinni á höfuðborgarsvæðinu, hún er risastór. Þannig að það sé sagt.

En hvað þarf að gera? Að mínu mati, virðulegur forseti, til að svara fyrirspurn hv. þingmanns, þá þarf að svara þessu kalli sveitarfélaganna. Það er gert að mínu viti þannig að þú færð Byggðastofnun, óháðan aðila, til að reikna þetta niður á útgerð og niður á sveitarfélög. Þá hafa sveitarfélögin nákvæmlega þau áhrif sem þetta mun hafa á þeirra heimahaga. Við komumst ekkert öðruvísi í gegnum þetta.