156. löggjafarþing — 38. fundur,  8. maí 2025.

veiðigjald.

351. mál
[13:20]
Horfa

Stefán Vagn Stefánsson (F) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni kærlega fyrir mjög gott andsvar. Það er alltaf gott hér í þessum þingsal þegar maður fær andsvör þar sem maður áttar sig á því að fólk var í alvörunni að hlusta á það sem maður sagði. En þannig að ég sé algjörlega skýr í því hvaðan ég kem í þessu máli og hvað ég er að tala um þá er ég að reyna að enduróma áhyggjur 26 sveitarfélaga, landshlutasamtaka, hringinn í kringum landið varðandi þetta frumvarp. Mér fannst eðlilegt, vegna þess að umræðan hér í þingsal hefur stundum verið svolítið í hástöfum, að við fengjum það bara nákvæmlega fram hér hvað sveitarfélögin eru að segja. Það var mín fyrri ræða. Þess vegna vildi ég taka umræðuna um Vestfjarðastofu, til þess einmitt að ítreka að menn hefðu enn þá áhyggjur þrátt fyrir þessar breytingar, vegna þess að það var svolítil umræða um það líka.

Það er alveg rétt að það átti ekki að koma neinum og komi engum á óvart að við myndum fara að ræða hér um breytingar á veiðigjöldum, en útfærslan lá ekki fyrir. Við höfðum ekki hugmynd um hvaða leið menn ætluðu að fara í útfærslunni. Þær eru mýmargar sem hægt er að fara og þessi sem er hér lögð til er að mínu mati ekki skynsamleg og okkur vantar betri gögn til þess að reyna að átta okkur á afleiðingum. Það er alveg rétt að samráðið er heldur ekki búið. Nú fer þetta til umsagnar eftir að við klárum þessa umræðu hér og ég vona bara, eins og ég sagði áðan, virðulegur forseti, að þetta fái lengri umsagnartíma núna heldur en það fékk síðast vegna þess að það er eitt af því sem var gagnrýnt.