156. löggjafarþing — 38. fundur,  8. maí 2025.

veiðigjald.

351. mál
[13:22]
Horfa

Árni Rúnar Þorvaldsson (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Stefáni Vagni Stefánssyni fyrir hans svar við mínu andsvari. Ég get alveg skilið áhyggjur sveitarfélaga þegar svona kemur fram sem snýr að atvinnutækjum í fyrirtækjum í þeirra heimabyggð sem getur haft veruleg áhrif og þar fram eftir götunum. Ég skil það bara mjög vel og því eðlilegt að mæta því eins og kostur er. Það hefur nú þegar verið gert að einhverju leyti, að verulegu leyti eins og kom fram í máli bæjarstjóra Snæfellsbæjar fyrir tveimur dögum, ef ég man rétt, og er mikilvægt að það sé gert. En ég get tekið undir með hv. þingmanni að það er auðvitað líka mikilvægt að halda þessu samtali áfram og fá þessi sjónarmið enn betur fram.

Mig langar þá í raun og veru að spyrja hv. þingmann: Eru einhverjar þær aðgerðir eða breytingar á frumvarpinu sem við gætum gert til að koma enn frekar til móts við lítil og meðalstór fyrirtæki sem gætu orðið til þess að hv. þingmaður myndi styðja það frumvarp sem hér er lagt fram og þá Framsóknarflokkurinn í heild sinni? Liggur eitthvað slíkt fyrir? Ef það yrði gengið lengra í þessum málum og eitthvað gert sem hann teldi til bóta fyrir frumvarpið, sérstaklega hvað varðar lítil og meðalstór fyrirtæki í sjávarútvegi, hvort það gæti orðið til þess að Framsóknarflokkurinn myndi hoppa á þetta frumvarp og styðja það með okkur.