veiðigjald.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir síðara andsvarið. Það er mér til efs að ítök mín í innsta kjarna Framsóknarflokksins séu nægilega mikil til að fá flokkinn til að fallast á þetta frumvarp vegna þess að það er einfaldlega aðferðafræðin sem við erum ekki sammála um, þessi aðferðafræði. Við höfum talað hér fyrir annarri útfærslu, skattlagningu á hærri tekjuskatti eða skattlagningu á hagnað. En gott og blessað. Nú fer þetta inn í nefndina og ég vona svo innilega að nefndin taki þetta frumvarp mjög föstum tökum og verði óhrædd við að gera breytingar sjái þau að þess sé þörf, vegna þess að þó að ég sé ekki sáttur við frumvarpið þá geri ég mér grein fyrir því að ég er í minni hluta í þessu þingi. Það er meiri hlutinn sem stýrir því og öllum breytingum til batnaðar á frumvarpinu mun ég fagna þó að ég kannski styðji ekki frumvarpið. En það skiptir ekki máli heldur það að þetta skiptir máli fyrir sveitarfélögin. Í mínum huga snýst þetta um það þannig að ef það er hægt að koma betur til móts við sveitarfélögin þá mun ég fagna því, og útgerðirnar. Ég hef áhyggjur af því að litlar og meðalstórar útgerðir muni leggja upp laupana. Það er bara raunverulegt áhyggjuefni hjá mér.
Af því að ég komst ekki í það í fyrra andsvari, af því að hv. þingmaður spurði mig hvort ég teldi að það væri svigrúm í kerfinu hjá stórútgerðinni til að borga hærra veiðigjald, þá er það alveg skýrt og hefur verið skýrt allan tímann hjá okkur í Framsókn og mér að það er svigrúm í kerfinu til að borga hærra veiðigjald hjá stórútgerðinni, (Forseti hringir.) ekki hjá litlum og meðalstórum fyrirtækjum. Það er áhyggjuefnið. En svigrúmið er til staðar og við höfum verið alveg skýr á því.