156. löggjafarþing — 38. fundur,  8. maí 2025.

veiðigjald.

351. mál
[13:34]
Horfa

Vilhjálmur Árnason (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir sína yfirferð hér um þróun sjávarútvegs í landinu og áhrif á byggðirnar. Hv. þingmaður taldi upp slatta af byggðarlögum. Stór hluti af þessum byggðarlögum hefur einmitt sent inn umsagnir þar sem fram koma mjög miklar áhyggjur af frumvarpinu. Hverjar eru áhyggjur þessara 26 sveitarfélaga utan Hvítár-Hvítár svæðisins sem hafa sent inn athugasemdir um áhyggjur sínar af þessu frumvarpi? Jú, það er einmitt samþjöppun og frekari hagræðing í sjávarútvegi, sérstaklega hjá litlum og meðalstórum útgerðum, einmitt það sem hv. þingmaður lýsti sem áhyggjum sínum hér, hvernig þróunin hefði verið. Því spyr ég hv. þingmann hvort hún óttist ekki þessar áhyggjur sveitarfélaganna sem hafa beint fjallað um þetta mál um að samþjöppun og lokun vinnsla haldi áfram eins og hv. þingmaður hafði áhyggjur af í allri sinni ræðu.