156. löggjafarþing — 38. fundur,  8. maí 2025.

veiðigjald.

351. mál
[13:36]
Horfa

Elín Íris Fanndal (Flf) (andsvar):

Ég þakka hv. þm. Vilhjálmi Árnasyni fyrir andsvarið. Þetta er mjög góð spurning. Jú, upp að vissu marki skil ég þessar áhyggjur, að sjálfsögðu. Samþjöppun hefur þegar orðið í byggðarlögum sem byggja afkomu sína á sjávarútvegi og þau hafa þar af leiðandi áhyggjur, það er mjög skiljanlegt. En ég minni aftur á þrepaskipta frítekjumarkið sem verður notað til að þetta hafi minni áhrif á minni og meðalstór fyrirtæki.