veiðigjald.
Ég þakka hv. þm. Vilhjálmi Árnasyni fyrir andsvarið. Ég nefndi hvergi í ræðunni hver mín heimabyggð væri og var beinlínis að vísa til þéttbýliskjarna víðs vegar um landið sem hafa goldið fyrir kvótatilfærslur í gegnum tíðina; margir þeirra gera það enn og ná sennilega aldrei að fullu að jafna sig á þeim ósköpum. Varðandi sveitarfélagið Þorlákshöfn þá skil ég áhyggjur þeirra fullkomlega en mér hefur sýnst að framkvæmdagleðin sé þvílík þar að í raun þurfi ekki að hafa áhyggjur og svo minni ég enn á frítekjumarkið. Svo bíðum við bara og sjáum til hvort þetta blessist ekki vel.
(KGH: Forseti vill minna hv. þingmenn á að ávarpa forseta í upphafi ræðu.)