veiðigjald.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Jóni Gunnarssyni fyrir andsvar sitt. Vil ég leggja kerfið af eins og það er? Nei, að sjálfsögðu ekki, en við boðum breytingar sem er gríðarlega mikilvægt. Ég hef eins og allir aðrir miklar áhyggjur af þessum sveitarfélögum sem eru að lýsa áhyggjum sínum yfir ástandinu eins og það er. En gleymum ekki að þetta hefur verið svona til langs tíma og þetta hefur farið versnandi. Það að stórútgerðin þurfi að borga hærra gjald fyrir afnotin af auðlindinni er ekki að kollvarpa þessum byggðarlögum. Það verður þá eitthvað annað sem gerir það.