veiðigjald.
Virðulegur forseti. Má ég biðja hv. þingmann um að endurtaka spurninguna? (JGH: Hefur hv. þingmaður ekki áhyggjur af því að þau sveitarfélög sem nú eru að lýsa yfir áhyggjum geti þá lent í kröggum út af …? ) Auðvitað er það áhyggjuefni ef sveitarfélög lenda í kröggum. Um það er ekki deilt. En hef ég trú á því að þau lendi í kröggum? Nei, ég hef ekki trú á því. Mér finnst, og ég hugsa að landsbyggðin öll sé sammála um það, að sveitarfélögin á landsbyggðinni hafi sannað sig í gegnum tíðina. Þeim hefur ekki beinlínis verið hjálpað við það af stjórnvöldum, með tilfærslu kvóta og útgerða, þau hafa gleymst. En það er líka gaman að hlusta á það hér í umræðunni um veiðigjaldið að þau skipta allt í einu öll svo miklu máli, lítil sem stór. Ég er að vísa í það að hv. þm. Jens Garðar Helgason talaði einmitt um það um daginn að öll sveitarfélög skiptu máli í þessu heildarsamhengi. Ég hugsaði með mér: Það er bara fínt. En það er líka eiginlega nýtilkomið að mínu mati.