156. löggjafarþing — 38. fundur,  8. maí 2025.

veiðigjald.

351. mál
[13:47]
Horfa

Jens Garðar Helgason (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Það gætir ákveðins misskilnings hér í umræðunni. Við erum að tala um það að það er verið að tvöfalda veiðigjöldin. Í kjördæmi hv. þingmanns er einn af burðarstólpum þess samfélags, Vinnslustöðin í Vestmannaeyjum, sem var að skila 500 millj. kr. tapi, veltir 26 milljörðum og ef lög hv. þingmanns ná í gegn þá hefði tapið orðið 1.200 milljónir. Það þarf að bregðast við, fyrirtækin munu bregðast við. Þess vegna er það svo grátlegt, þegar þetta liggur algerlega fyrir, að það eru engar greiningar um hver áhrifin verða á sveitarfélögin, þjónustufyrirtækin, tæknifyrirtækin, nýsköpunarfyrirtækin, engar. Það á bara að keyra þetta í gegn og sjá svo til. Og það er ekki nógu gott og það er ekki nógu sannfærandi og það er eiginlega ekki boðlegt að þjóðinni sé boðið upp á þetta alveg sama hvað allar skoðanakannanir segja.

Þá langar mig að spyrja hv. þingmann: Telur hún að 75% ígildi tekjuskatts, alveg sama hvaða rekstur það er, í þessu tilfelli sjávarútvegsins — telur hún ekki að 75% tekjuskattshlutfall sé aðeins of hátt?