veiðigjald.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir seinna andsvarið. Ég líð nú fyrir skamman tíma frá því ég kom inn á þing, til að hafa svo djúpa þekkingu á þessu máli. Ég viðurkenni það alveg hér með, og það var líka það sem ég hugsaði þegar ég ákvað að taka þessa ræðu, sem að mínu viti er fyrir hönd fólksins í landinu, ekki talna á blaði eða stórfyrirtækja — ég gerði mér grein fyrir því að ég yrði mögulega tekin aðeins í hakkavélina hér af stjórnarandstöðunni. Ég ætla bara að reyna að standa undir því skammlaust og lýsa því aftur yfir að ég tala vissulega af reynslu. Það má kalla það nostalgíu. Það má kalla það hitt og þetta. En þetta er engu að síður reynsla Íslendings og mjög margra Íslendinga og þess vegna er þjóðin eiginlega með þessari hækkun — fyrirgefið, leiðréttingu — á veiðigjaldinu.