156. löggjafarþing — 38. fundur,  8. maí 2025.

veiðigjald.

351. mál
[13:50]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Elínu Írisi Fanndal fyrir hennar ræðu. Fyrsti punktur: Mér leiðist svakalega þegar hv. þingmenn segja að þeir séu að tala fyrir fólkið í landinu, eins og þeir séu bara að tala fyrir allt og alla hvar sem er. Þetta er bara svona frasi sem fer svolítið í taugarnar á mér í allri umræðu. Það hafa orðið gríðarlegar breytingar í sjávarútveginum, tæknibylting. Það hefur fækkað úr 10.000 manns í fiskvinnslu niður í 3.000 manns á um það bil 35 árum, með þeirri tæknibyltingu sem hefur orðið. Að verja samkeppnishæfni í sjávarútveginum, sem er kannski sá atvinnuvegur sem hefur mestu samkeppnishæfni í landinu, grunnatvinnuvegur — hefur hv. þingmaður engar áhyggjur af því að það sé raunverulega verið að eyðileggja samkeppnishæfni minni byggða, minni þorpa, í sjávarútvegi með þessum hætti þar sem kannski er verið að vaða í vinnslu þar sem verið er að vinna 2.000–3.000 tonn? Er ekki verið að draga verulega úr möguleikum þessara sveitarfélaga til að halda uppi fiskvinnslu?