156. löggjafarþing — 38. fundur,  8. maí 2025.

veiðigjald.

351. mál
[13:52]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S) (andsvar):

Herra forseti. Við erum með nokkur mál hér í þinginu sem koma að því að verja samkeppnishæfni landsbyggðarinnar. Hér erum við með mál sem snertir svæði þar sem um 15% þjóðarinnar búa, þ.e. utan Hvítár-Hvítár svæðisins, en 80% af skattsporinu sem verið er að koma á fara yfir á þessar byggðir, fólkið sem býr á þessum svæðum. Það er það sem við erum að fást við í þessu frumvarpi, sirka 60.000 manns munu bera þann kostnað. Það hefur komið fram í þessari umræðu að skattsporið á höfuðborgarsvæðinu, innan Hvítár-Hvítár svæðisins, sé 296.000 kr. á manneskju, en utan Hvítár-Hvítár svæðisins er það 2.333.000 kr. ef ég man rétt. Hér er því farið virkilega hart gegn landsbyggðunum. Ég vil svo minna á búvörulögin sem eru hreint og beint árás á dreifðari byggðir landsins eins og þau eru sett upp, og það mál fór ekki einu sinni í samráðsgátt. Við erum að fást við það í atvinnuveganefnd. Svo myndi ég gjarnan vilja sjá fleiri hv. þingmenn úr hv. atvinnuveganefnd taka þátt í þeirri umræðu sem við erum að fást við hér.(Forseti hringir.) Hér vantar allar greiningar, öflugar greiningar, á fjárhagslegum áhrifum þessa máls á dreifðar byggðir landsins.