156. löggjafarþing — 38. fundur,  8. maí 2025.

veiðigjald.

351. mál
[14:11]
Horfa

Þorsteinn B Sæmundsson (M) (andsvar):

Hæstvirtur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir prýðisræðu. Hann er margreyndur og hefur marga fjöruna sopið í atvinnumálum og er vel inni í málum. Mig langaði kannski aðeins til að biðja hv. þingmann að hnykkja á áhrifum þessa frumvarps á sveitarfélög. Við höfum heyrt ákall frá allnokkrum og síðast núna í vikunni frá Vestfjarðastofu þar sem menn lýsa þungum áhyggjum. Það hefur lítið verið gert með þetta hér í ræðum stjórnarliða. Það mætti halda að þeir hafi þá skoðun að sveitarstjórnarmenn upp til hópa séu eins konar starfsmenn útgerðarmanna, sem er náttúrlega ekki.

En síðan er annað sem mig langaði til að fara aðeins yfir með hv. þingmanni og það er að það er ekki sama útgerð og útgerð. Á sínum tíma árið 2013 þegar við sátum saman í atvinnuveganefnd þá man ég að það var sett saman frumvarp og samþykkt sem gerði ráð fyrir því að tíu stærstu sjávarútvegsfyrirtæki á Íslandi greiddu 75% af veiðigjaldi. Ég persónulega var þá alveg sannfærður um að við værum búnir að koma í veg fyrir samþjöppun í sjávarútvegi en hún hefur líklega aldrei orðið meiri heldur en einmitt þessi síðustu 12 ár sem eru liðin frá því að þessi lög voru sett.

Mig langaði til þess að biðja hv. þingmann að fara yfir þetta líka, hvort hann sé sammála því að á sínum tíma, þegar við börðumst í þessu, hafi árangurinn því miður kannski ekki orðið eins og við reiknuðum með.