veiðigjald.
Virðulegur forseti. Hver áhrifin verða á sveitarfélögin, spyr hv. þm. Þorsteinn Sæmundsson. Það er erfitt að svara því þar sem skortir á alla greiningarvinnu í þeim efnum. En það er svolítið hægt að lesa auðvitað í reynsluna, í söguna, hver áhrifin verða og tímabundin áhrif sem geta varað í svolítinn tíma á mjög viðkvæmum tíma, svo ég ítreki það, verða alveg örugglega þau að menn halda að sér höndum á þessum óvissutímum. Það sést nú þegar. Menn hafa sett pantanir á tækjum og búnaði og alls konar hlutum í frost og skapað þannig mikla óvissu langt út fyrir sínar raðir, öll þessi afleiddu störf, öll þessi afleiddu fyrirtæki sem búa yfir þessum afleiddu störfum. Það er óljóst hver áhrifin verða en ég held, eins og ég sagði áðan í ræðu minni, að það verði ekkert annað en aukin hagræðing, aukin samþjöppun sem þetta mun leiða af sér. Það getum við lært af sögunni, svo mikið er víst. Þá hljóta menn sem standa fyrir slíkum breytingum eins og við erum að verða vitni að hér að þurfa að fara að skoða það hversu langt félögin geta teygt sig til að vera hagkvæm í rekstri. Stærð þeirra, stærðarhagkvæmnin, ræður þar miklu. Erum við þá ekki farin að tala um það að þessir sömu aðilar ríkisstjórnarflokkanna þurfi að fara að svara því hvort þeir vilji fara að hækka þessi viðmið sem eru í heildareign, halda utan um hluta af heimiluðum heildarafla? Við erum með þarna 12% og 7% í smábátakerfinu. Þurfa menn ekki að fara að huga að breytingum í þessu til að ekki fari illa?