veiðigjald.
Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir þetta svar. Það er annað atriði í þessu máli sem vefst svolítið fyrir mér og hugsanlega fleirum en það er að á sama tíma og ríkisstjórnin leggur fram þetta frumvarp, sem er algerlega, eins og hv. þingmaður benti svo réttilega á, til þess fallið að auka samþjöppun og búa til stærri fyrirtæki, stærri einingar, boðar ríkisstjórnin að hér verði mjög auknar strandveiðar. Maður spyr sig: Hvar er stærðarhagkvæmnin í því? Getur þetta unnið saman, að menn séu að stuðla að því að hér verði til stærri einingar en á sama tíma eru menn að mylja niður aflaheimildir fyrir 800–900 manns sem eftir því sem ég best veit borga ekki veiðigjöld?