156. löggjafarþing — 38. fundur,  8. maí 2025.

veiðigjald.

351. mál
[14:17]
Horfa

Jón Gunnarsson (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Já, auðvitað er þetta gríðarlega umdeilt með auknar strandveiðar. Ég man mjög vel eftir þeirri umræðu sem átti sér stað hér í þinginu þegar strandveiðar voru settar á, á sínum tíma. Ég held að það hafi verið um 4.000 tonn sem menn töldu nú hæfilegt að vera með í strandveiðum, þetta byrjaði þar. Þetta er komið í 10, 11, 12 þús. tonn núna eftir árum og nú stefnir í það að þetta þurfi að fara yfir 20 þús. tonn, 25 þús. tonn. Þessu var spáð, þetta væri raunverulega óseðjandi kerfi. Ég átta mig ekkert á því hvernig ríkisstjórnin og hæstv. ráðherra ætlar að leysa þetta og uppfylla þau loforð sem gefin hafa verið og þær væntingar sem menn hafa sem nú eru byrjaðir að róa og hvaðan á að taka þennan afla, enda hefur hún ekki getað gefið okkur svör við því enn þá. Menn eru farnir að fjárfesta á grundvelli kannski falsvona. Það er ábyrgðarlaust, enn og aftur, í þessu umhverfi sem við erum í, (Forseti hringir.) að fara þessa leið svo bratt sem ríkisstjórnin gerir. En þetta er verðmiðinn á þessari ríkisstjórn. Hann birtist ekki með skýrari hætti en þarna.