veiðigjald.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þm. Jóni Gunnarssyni fyrir sína ræðu. Hann kemur inn á þetta hlutfall í upphafi, hvað bæjarútgerðir áttu versus aðrir sem fengu úthlutað. U.þ.b. 40% fengu úthlutað, sem vissulega höfðu þá meiri möguleika til að kaupa meiri kvóta og stækka. Við vitum í dag að það er mjög misjöfn skuldastaða hjá útgerðum, sama hvort við erum að tala um minni aðila eða þá sem stærri eru. Mig langar til að spyrja hv. þingmann hvort hann telji að frumvarpið eins og það lítur út núna sé nægjanlega sveigjanlegt í samhengi við greiðslugetu út frá skuldastöðu og þá kannski óháð stærð.