veiðigjald.
Virðulegur forseti. Já, þetta hlutfall, hverjir héldu á aflaheimildunum þegar kvótakerfið var upphaflega sett á, við erum búin að fara yfir það. Hagræðingin átti sér líka stað í framhaldi af því og það eru margir hér inni sem muna eftir svokölluðum úreldingarsjóði. Útgerðirnar greiddu í úreldingarsjóð og hann var notaður til að kaupa af útgerðarmönnum báta sem voru úr sér gengnir og voru gjarnan dregnir út á haf og sökkt einhvers staðar. Í öðrum löndum er það þannig að skattborgararnir almennt hafa verið rukkaðir og þeir greitt fyrir þessa endurnýjun og þessa hagræðingu. En útgerðin sá um það líka samhliða því að ákveðin fyrirtæki tóku áhættuna, sýndu frumkvæði og fóru að kaupa og byggja sig upp. Þannig hefur eiginlega allur kvóti hjá öllum þessum stærstu fyrirtækjum verið keyptur á markaði, spilað eftir leikreglum sem eru búnar að gilda í landinu í yfir 40 ár og árangurinn lætur ekki á sér standa.
Jú, ég held að skuldastaða sé eðlilega mjög misjöfn og það á við allar tegundir útgerðarfyrirtækja og það þarf auðvitað að taka tillit til þess. Þetta er ekki rétta leiðin til að skattleggja, að mínu mati, neina atvinnugrein sérstaklega. Það eru allt aðrar leiðir sem þyrfti að fara. Ég nefndi hér áðan í andsvari við hv. þm. Sigmund Davíð Gunnlaugsson hvort menn ættu að fara þá leið að þjóðin ætti bara — það væri lögbundinn ákveðinn hlutur í öllum útgerðum í landinu sem myndaði þjóðarsjóð og fólk fengi síðan greiddan arð út úr þessum fyrirtækjum þegar greiddur væri arður. Þetta er ekki góð leið til að fara. (Forseti hringir.) Þetta er leið sem dregur úr vilja og getu til aukinna framfara og aukinnar verðmætasköpunar.