veiðigjald.
Virðulegur forseti. Við höfum auðvitað náð á heimsvísu alveg ótrúlegum árangri í hagræðingu og nýsköpun. Það á sér bara engin dæmi hjá öðrum þjóðum hvað við erum að ná miklum verðmætum út úr hverjum veiddum fiski. Og já, það má vel vera að það þurfi að verða hagræðing og hún þarf alltaf að halda áfram. Við þurfum auðvitað að vera á tánum þar og vera leiðandi. Við eigum öflug fyrirtæki sem í samvinnu við íslenskan sjávarútveg hafa byggst upp og eru að selja afurðir sínar og framleiðslu úti um allan heim. Ég tel jafnframt að það þurfi að standa vörð um fjölbreytt útgerðarform. Ég minni á orð Ragnars Árnasonar prófessors sem þekkir þessi mál mjög vel, ég heyrði hann einu sinni í fyrirlestri tala um mikilvægi þessarar fjölbreytni í útgerðarformum. Það skapaði mikinn sveigjanleika í íslenskri útgerð (Forseti hringir.) sem gerði hana samkeppnishæfari þegar breytingar yrðu á mörkuðum. Við hefðum sveigjanleika og gætum teygt okkur í allar áttir, það gerðist með þessum fjölbreyttu útgerðarformum. (Forseti hringir.) Ég held að við þurfum að finna leiðir þar sem við stuðlum að því að það verði áfram en ekki mjög einhæft útgerðarform.