veiðigjald.
Herra forseti. Ég vil byrja á að þakka hv. þm. Jóni Gunnarssyni fyrir ágæta ræðu og kannski ekki síst þann hluta hennar þar sem hv. þingmaður fór aðeins yfir söguna og gerði ágæta grein fyrir því hvernig staðan var hér á sínum tíma. Ég velti fyrir mér: Nú hef ég setið hér undir næstum því hverri ræðu síðan umræðan hófst. Ég hef farið ítrekað í andsvör, ég er búinn að halda eina ræðu sjálfur, fæ vonandi að halda aðra, og allt í einum tilgangi, þ.e. að spyrja hv. þingmenn og hæstv. ráðherra út í greiningar á afleiðingunum fyrir hin ólíku byggðarlög.
Það verður að segjast eins og er, herra forseti, að þrátt fyrir alla þessa klukkutíma er ég engu nær. Stjórnarliðar hafa jú vissulega komið upp og fullyrt að hér séu til grundvallar greiningar á áhrifum frumvarpsins. Ég hef því ítrekað spurt hvar ég finni þær. Mér er sagt að þær séu í frumvarpinu. Nú er ég að verða búinn að lesa frumvarpið svo oft að ég held að ég láti staðar numið í lestri á því. Ég finn ekki þessarar greiningar í þessu frumvarpi. Ég finn vissulega fullyrðingar um greiningar, það kemur fram í lið 5.1.3 um áhrif frumvarpsins á sveitarfélög. En svo koma bara fullyrðingar um að þessi vinna og hin hafi farið fram og að áhrifin séu óveruleg en greiningarnar fylgja ekki. Hvað var skoðað? Hvað var metið? Hvernig var unnið? Ekkert af þessu fylgir.
Ég spyr því hv. þm. Jón Gunnarsson hvort hann viti eitthvað betur en ég um þetta og hvort hann hafi fundið þær greiningar sem ég hef verið að leita að.