156. löggjafarþing — 38. fundur,  8. maí 2025.

veiðigjald.

351. mál
[14:28]
Horfa

Jón Gunnarsson (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Það er auðvitað hárrétt og hefur verið gagnrýnt af öllum hagsmunaaðilum, getum við sagt, hversu lítt er vandað til verka hér, það er alveg hrópandi, og þær upplýsingar sem kallað hefur verið eftir liggja ekki fyrir. Þetta hefur leitt til þess að sveitarfélögin hafa tekið sig saman og eru að láta óháða aðila vinna fyrir sig greiningar og sviðsmyndir. Útgerðaraðilarnir eru að gera það sama, einstök fyrirtæki og samtök þeirra. Það eru allir að reyna að átta sig á þessari mynd sem við blasir og það skapar auðvitað þá miklu óvissu sem við höfum verið að ræða um.

Það er líka áberandi hvernig að undirbúningi var staðið. Þessi stutti umsagnarfrestur er algerlega á skjön við vandaða meðferð við lagasetningu. Samtal við hagsmunaaðila var í skötulíki, það höfum við bara heyrt. Það heyrðist ekki í ráðherra gagnvart Samtökum fyrirtækja í sjávarútvegi. Það leið langur tími þannig að samráð og samtal hefur ekki átt sér stað eða skoðanaskipti. Mér finnst kannski einna mest hrópandi í þessu athugasemdir sérfræðinga ráðuneytisins, sem voru síðan opinberaðar, þau viðvörunarbréf sem þeir sendu á ráðherra og þar með inn í ríkisstjórn: Viljið þið ekki vanda ykkur aðeins, fara aðeins hægar? Það var ekki hlustað á þetta fólk. Þetta er auðvitað algerlega fordæmalaust og á bara ekki að gerast í vandaðri lagasetningu.

Ég held að þetta sé allt til komið vegna þess að það liggur svo á að fá peninga til að stoppa upp í eitthvert útgjaldagat. Þá kemur hin ómerkilega fullyrðing um að þetta eigi einhvern veginn að bjarga samgöngubótum á landsbyggðinni. Einhverjir milljarðar til eða frá hafa lítið að segja meðan verkefnin sem standa út af borðinu þar eru upp á tugi ef ekki hundruð milljarða. Það þarf að bregðast við því með allt öðrum hætti en að stokka upp í gjaldtöku á sjávarútveginn.