156. löggjafarþing — 38. fundur,  8. maí 2025.

veiðigjald.

351. mál
[14:30]
Horfa

Þorgrímur Sigmundsson (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég hef í þessari umræðu bent á fleiri dæmi eins og þau sem við erum að ræða hér, þ.e. skortinn á þeim nauðsynlegu greiningum sem þurfa að fylgja frumvarpinu. Þar má nefna kílómetragjaldið. Því fylgdi engin greining á áhrifum á landsbyggðina. Skerðing á byggðakvóta um allt að 70% til byggðarlaga eins og Langanesbyggðar, ég hef ekki séð neina greiningu frá hæstv. ríkisstjórn um áhrif þess niðurskurðar. Þannig heldur þetta áfram. Þetta er einhvern veginn allt á sömu bókina lært, hvaða skoðun sem menn hafa svo á hverju og einu frumvarpi fyrir sig, bara að greiningarnar fylgi þannig að hægt sé að taka umræðuna á einhverjum eðlilegum grunni. Ég spyr því hér að lokum, af því ég veit að hv. þingmaður hefur setið hér talsvert lengi og er reynslumikill: Hvað getur minni hlutinn gert til að stöðva það meginþema meiri hlutans (Forseti hringir.) að dæla inn hálfkláruðum málum án nauðsynlegra greininga?