veiðigjald.
Virðulegur forseti. Hvað getum við gert? Við getum í sjálfu sér reynt að leiða fram málefnalega umræðu eins og við erum að gera í þeim málum sem um ræðir og er mikilvægt að gera. Þess vegna sakna ég þess að sjá ekki fleiri þingmenn stjórnarflokkanna hér í salnum í dag þegar við ræðum þessi mál því að ný gögn eru alltaf að koma fram. En hv. þingmaður nefnir hér önnur dæmi um það sem við getum kallað aðför að landsbyggðinni. Þetta mun örugglega koma verst við landsbyggðina, þessi óvissa sem hér liggur undir mun koma verst við landsbyggðina, það er engum blöðum um það að fletta; hún mun auðvitað skila sér inn í þjóðarbúið með þeim hætti en kemur við einstakar byggðir. Þessi skerðing á byggðakvóta er náttúrlega tilfærsla yfir í auknar strandveiðar sem skilar alls ekki því sem er óskað eftir.
Við vorum að fjalla um búvörulögin í atvinnuveganefnd í morgun og (Forseti hringir.) bændur utan af landi og formenn landshlutasamtaka bænda komu á fund nefndarinnar og lýstu yfir alveg gríðarlegum áhyggjum allrar bændastéttarinnar, nánast undantekningarlaust, af þeirri vegferð sem ríkisstjórnin er á. (Forseti hringir.) Algerlega vanhugsað aftur, að draga tennurnar úr íslenskum landbúnaði sem nánast er tannlaus vegna þess hvernig búið hefur verið um leikreglur þar. (Forseti hringir.) Það er verið að reyna að koma þessu af stað svolítið aftur og koma grunni undir þetta, en það á áfram að höggva í sama knérunn.