veiðigjald.
Herra forseti. Orð dagsins eru hvers vegna. Hvers vegna er þetta mál komið hér inn núna, jafn vanbúið og það er, á þeim hraða sem það hefur komið á, án þess að umsagnaraðilar fái fullan tíma eða nokkurn tíma til að gefa umsagnir um það? Þessi lög, ef af verða, eiga að taka gildi um næstu áramót. Hvers vegna liggur svona mikið á? Þetta er reyndar plagsiður hjá ríkisstjórninni og hefur verið og ég hef tekið eftir því á mínum stutta tíma hér nú. Það er ekki langt síðan við fengum hér inn frumvarp um Jöfnunarsjóð sveitarfélaga. Þar var jafn stuttur frestur. Þar var jafn mikill asi. Hafandi lesið umsagnir nokkurra sveitarfélaga og landshlutafélaga sveitarfélaga um þetta mál um veiðigjöld er engu líkara heldur en ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur sé búin að segja sveitarfélögunum stríð á hendur vegna þess að það er ekkert hlustað, menn fá engan tíma til að tjá sig og það er enginn áhugi. Ég velti því fyrir mér líka, af því ég að segi aftur hvers vegna, að þá verðum við að fara yfir það hvernig málið er búið og hvernig það er komið hingað. Það er komið hingað vegna þess að tveir stærri stjórnarflokkarnir hafa ákveðið að pína þetta mál í gegnum Flokks fólksins gegn aukningu í strandveiðum sem verður ekki hægt að standa við, ekki á nokkurn einasta átt, en nóg til þess að Flokkur fólksins kyngdi, enda er hann með kokvíðari flokkum á Íslandi um þessar mundir og étur öll sín loforð ofan í sig eitt af öðru.
Þegar ég segi hvers vegna þá hafa menn líka sagt: Jú, það er vegna þess að við, þessir flokkar, unnum svo stóran og glæstan kosningasigur og við lofuðum þessu fyrir kosningar. Víst er að þessir góðu flokkar unnu dágóðan kosningasigur og fengu umboð til að stýra landinu en ekki endilega út á loforð vegna þess að þeir eru ekkert að standa við nein loforð. Það er ekki mjög langt síðan hæstv. forsætisráðherra, þá í framboði, lýsti því yfir að stefnan væri að endurskoða fiskveiðistjórnarkerfið, veiðigjaldakerfið, á tíu árum, herra forseti. Eftir kosningar kemur sami forsætisráðherra og hennar ríkisstjórn fram með málið og þetta á að gerast á hálfum mánuði, án samráðs, án þess að hlustað sé á nokkurn mann. Þetta veldur náttúrlega gríðarlegum áhyggjum. Það er alveg hægt að segja það. Ég verð að segja að hugur minn hvarflar til baka til ársins 2013 þegar ég var tiltölulega nýsestur inn á þing og var í atvinnuveganefnd. Þá var gerð breyting á veiðigjöldum sem var á þann veg að tíu stærstu útgerðarfyrirtæki landsins myndu greiða 75% allra veiðigjalda. Þeir sem voru með minni og meðalstórar útgerðir fengju lækkun veiðigjalds. Þetta frumvarp sem hér liggur fyrir gerir ráð fyrir að tíu stærstu sjávarútvegsfyrirtækin borgi 67% af öllum veiðigjöldum. Þarna fyrir þessum 12 árum síðan var ég alveg viss um að við værum búnir að koma í veg fyrir frekari samþjöppun í þessari grein. Ég var alveg sannfærður um það. Samt sem áður höfðu nokkrir útgerðarmenn haft samband við okkur í aðdraganda þess að lögin voru sett. Sá aðdragandi, herra forseti, var þá ekki hálfur mánuður. Hann var drjúgum lengri. Þeir vöruðu við og sögðu: Við munum ekki þola þetta. Eftir að lögin voru sett og raunar frumvarpið orðið að lögum þá heimsóttum við suma þessa ágætu menn og konur, þau ráku litlar vel reknar útgerðir, kannski með tvo sirka 150 tonna báta, eitthvað slíkt, stóðu sig mjög vel og þeir sögðu aftur: Við munum ekki lifa þetta af, og hvað gerðist? Ég man í fljótheitum að á þessum tíma seldu sig út nokkrar útgerðir á Suðurlandi og ég segi aftur vel reknar útgerðir, fjölskyldufyrirtæki, nokkrar í Vestmannaeyjum, nokkrar á Snæfellsnesi, nokkrar á Vestfjörðum. Það er ekki búið enn vegna þess að þó að öll þessi ár séu liðin þá er ekki mjög langt síðan t.d. fyrirtæki sem í sjálfu sér hélt uppi fiskvinnslu á Tálknafirði og þar í grennd seldi þegar það réð ekki við þessi veiðigjöld sem þá voru.
Fyrst það er svo að þessi fyrirtæki, eins og ég segi aftur, vel rekin fjölskyldufyrirtæki — við höfum heyrt t.d. núna frá snurvoðarveiðimönnum. Þar eru menn með litlar útgerðir. Þeir hafa áhyggjur og segja: Við munum jafnvel ekki lifa þetta af. Þá fer maður að hugsa með sér: Hvaða þorp og bæir eru eftir sem munu hugsanlega leggjast af eða verða fyrir miklum áhrifum af þessu? Jú, það eru nokkur þorp sem mér dettur í hug t.d. á Vestfjörðum, nokkur á Norðurlandi, nokkur á Reykjanesskaga og þar í grennd. Ég held að þetta eigi eftir að hafa meiri áhrif heldur en menn segja.
Það er mjög gagnlegt og gott að stjórnarþingmenn hafi fjölmennt hingað í þennan ræðustól út af þessu máli. Þeir hafa allir kyrjað sömu möntruna: Þetta er leiðrétting, smá klikk. Ríkisstjórnin hefur greinilega gleymt að upplýsa þá sem skrifuðu frumvarpið um að þetta væri leiðrétting vegna þess að þeir sem skrifa frumvarpið og greinargerðina segja: Hér er um skatt að ræða. Þetta er engin leiðrétting, þetta er skattahækkun, sem núverandi ríkisstjórn er reyndar búin að lofa að þeir muni ekki standa fyrir. (Gripið fram í.)Ekki satt? Það er t.d. á leiðinni frumvarp um að hætta við samsköttun hjóna, sem er dulbúin skattahækkun, þannig að orð og gerðir fara ekki saman.
Mig langar líka að fara austur á land, austur í Fjarðabyggð. Þar eru tvö fyrirtæki sem ég þekki aðeins til. Ég sat í stjórn í forvera annars þeirra í tæp tíu ár; fyrirtæki sem var stofnað 1945 og hefur á hverju einasta ári sem vel gengur fjárfest fyrir þann hagnað sem hefur myndast hjá fyrirtækinu, nýbúið að reisa frystihús fyrir uppsjávarfisk sem er ekkert minna heldur en á heimsmælikvarða. Hinum megin við fjallið er fyrirtæki sem heitir Síldarvinnslan, eitt af þremur fyrirtækjum í sjávarútvegi sem eru á markaði, með 3.200 hluthafa, þannig að sægreifarnir — það eru nú orðnir nokkuð margir hausar ef menn ætla að höggva allt. 3.200 hluthafar. 25% af því fyrirtæki er í eigu lífeyrissjóða, eftirlaunasjóða erfiðismanna á Íslandi. Á þessum fyrstu dögum sem liðnir eru frá því að þetta frumvarp var kynnt hefur verðmæti þessara þriggja fyrirtækja — eitt er hér í Reykjavík, 36% í eigu lífeyrissjóða, Útgerðarfélag Reykjavíkur — fallið í verði um milljarðatugi áður en lögin taka gildi. Og hvað gerist þá, herra forseti, eftir að þessi lög taka gildi? Stjórnarþingmenn koma hér upp hver á fætur öðrum og segja að það verði engin áhrif af þessu, ekki nokkur. Það getur svo sem vel verið að þetta sé þeirra bjargfasta skoðun vegna þess að það eru engar greiningar í frumvarpinu um hvaða áhrif það muni hafa þannig að þau hafa kannski setið hljóð og prúð á þingflokksfundi og látið mata sig á þessu og koma svo hér og tyggja þetta upp. Svo fáum við bráðskemmtilegar hugmyndir eins og frá einum stjórnarþingmanni sem sagði að það ætti að refsa þeim útgerðarmönnum sem færu út í það að flytja út fisk í meira mæli en áður. Nú veit ég ekki hvernig fiskilöggan verður, hvernig hennar starfi verður háttað. Ef ég man rétt eru u.þ.b. 30 tollhafnir á Íslandi og ef það á að hafa nokkrar fiskilöggur á öllum þessum stöðum til að fylgjast með þessum vondu útgerðarmönnum sem eru að flytja fisk úr landi þá getur þetta orðið dálítið batterí að reka, held ég. Það er svo margt í þessu máli sem er í algjörri þoku.
Síðan er hinn endinn á þessum peningi sem er ekki síður áhugaverður vegna þess að það var lagt upp með það að þetta frumvarp, orðið að lögum, ætti að skila ríkissjóði 10 milljörðum. Nú er það dottið ofan í sjö og hálfan, herra forseti. Út úr þessu dæmi munu aldrei koma 7,5 milljarðar vegna þess að veiðigjöld eru frádráttarbær frá tekjuskatti. Hærri veiðigjöld, lægri tekjuskattur, minna skattspor, minni útsvarstekjur í byggðunum. Hvar er ábati ríkissjóðs af þessu? Hann verður enginn, herra forseti. Til að bíta höfuðið af skömminni tala stjórnarliðar svipað og var gert í barnaljóði þegar ég var ungur. Það byrjar einhvern veginn þannig, með leyfi hæstv. forseta:
„Ef að nú hjá pabba einn fimmeyring ég fengi,“ ung stúlka sem lýsir því mjög fjálglega hvað hún myndi gera ef pabbi hennar myndi gefa henni fimmeyring. Hún ætlaði að gefa öllum í kringum sig allt sem henni datt í hug og skila mömmu afgangnum. Þetta er svolítið svona, þetta mál, herra forseti. Þetta verða aldrei neinir 7,5 milljarðar eða hvað það er, en hvað ætla menn að gera? Þeir ætla að teppaleggja landið með vegum. Það eru 300 milljarðar sem vantar í vegina. Þetta er ekki það eina, það á líka að gera stórátak í hinum ýmsum málum fyrir 7,5 milljarða sem skila sér ekki. Það á að stoppa upp í gatið á fjárlögunum. Fjárlög Íslands eru 1.500 milljarðar. Ég bara verð að viðurkenna að hagfræðikunnátta mín nær ekki yfir þetta, því miður, vegna þess að þetta eru allt innantóm orð. Svo kemur hæstv. utanríkisráðherra hérna stormandi inn í salinn og segir: Tollastríð sem er í uppsiglingu er högg fyrir íslenskan sjávarútveg. Á sama tíma er flokkurinn hennar að gefa sjávarútveginum utan undir hinum megin. Ég veit ekki hvernig maður á að taka svona tíðindum, herra forseti, vegna þess að þetta er svo víðáttufirrt raunveruleikanum, algerlega.
Ég stakk upp á því við annað frumvarp hérna, sem var líklega jöfnunarsjóðurinn, að ríkisstjórnin einfaldlega tæki það mál til baka aftur, ynni það bara eins og fólk og kæmi með það inn aftur. Ég held að heitasta ósk mín varðandi þetta frumvarp hér væri sú að ríkisstjórnin einfaldlega tæki þetta til baka, ynni þetta eins og fólk í samráði við aðra, hlustaði á þá sem koma að þessu, hagaðila, sveitarfélög og fleiri, hlustaði, tæki mark á og kæmi með málið fullbúið og vel reifað hér seinna á árinu. Þetta á jú að taka gildi um næstu áramót þannig að menn þurfa ekki að koma í þessum hlandspreng með þetta hérna inn og gera lítið úr störfum þingsins með því að reyna að böðla þessu í gegn á engum tíma. — En nú er ég búinn með tímann minn, því miður, herra forseti, og ég sé ekki annað en að ég verði að biðja um aðra ræðu til að geta haldið áfram.