veiðigjald.
Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Þorsteini Sæmundssyni fyrir prýðisgóða ræðu. Það mál sem við hv. þingmenn höfum verið að ræða hér í vikunni virðist, ásamt fleiri málum sem koma inn í þingið, ganga svolítið út á það að draga þróttinn úr landsbyggðunum. Í þessu máli eru greiningarnar slæmar og greinilegt að við í hv. atvinnuveganefnd þurfum virkilega að taka á honum stóra okkar til að ná utan um málið og fá þær greiningar sem nauðsynlegt er að hafa við höndina.
Við erum líka með annað mál í atvinnuveganefnd sem við höfum lítillega komið inn á. Í samráðsgáttinni var mjög stuttur frestur fyrir þetta gríðarlega stóra mál, þetta var inn í páskana. Við sjáum að sveitarfélögin hafa virkilega kvartað og kveinað yfir því, fjöldinn allur af þeim sveitarfélögum sem hafa skilað inn athugasemdum um búvörulögin, sem við erum að fást við í atvinnuveganefnd núna, að það hafi ekki einu sinni farið inn í samráðsgáttina, grundvallarmál sem snýr að mesta dreifbýli landsins og dreifðum byggðum. Við getum svo tekið innviðagjöldin, skemmtiferðaskipin og annað sem er líka dreifbýlisskattur, landsbyggðarskattur.
Það virðist vera farið mjög hart fram gagnvart landsbyggðunum af hálfu þessarar ríkisstjórnar og það höfum við upplifað á fyrstu vikum og mánuðum hér í þinginu. Þetta er popúlismi, eins og ég hef margoft sagt hér, þetta á að bjarga ríkisfjármálunum, 1.500 milljarða fjárlögum. Það er látið hljóma úti í bæ eins og að þetta eigi að vera stóra málið þegar verið er að fara gegn lögum um opinber fjármál. Það eru ekki markaðir tekjustofnar — þannig virkaði það þegar þau lög voru samþykkt hér fyrir áratug síðan í þinginu. Svo er það ágætt sem hv. þingmaður kemur inn á að þegar ég ræddi hér um hlutabréfamarkaðinn, áhrif á verðmæti fyrirtækjanna, þá var það bara eins og þruma úr heiðskíru lofti, það virtist vera að hæstv. ráðherra atvinnumála væri ekki á þeim tímapunkti búinn að átta sig á þeirri greiningu á þessu sem hefur komið frá Jakobsson Capital.